06.01.1917
Efri deild: 13. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (712)

1. mál, nefnd til að ákveða verð á vörum

Hannes Hafstein:

Vil að eins taka það fram til athugunar, út af fyrirsögn frumvarpsins, að nú á hún ekki lengur við. Nú eru ráðherrar orðnir þrír og tjáir því ekki lengur að nefna að eins ráðherra Íslands í eintölu, heldur verður að setja „landssjórnin“ eða „ráðuneytið“ í staðinn, eða þá tilgreina hverjum ráðherranna er ætluð heimildin, ef einum er ætluð.