08.01.1917
Efri deild: 14. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í B-deild Alþingistíðinda. (739)

4. mál, Íslandsbanka leyft að auka seðlaupphæð

Framsm. (Hannes Hafstein):

Jeg hefi engu við að bæta ummæli mín við 2. umr. málsins, en vil að eins vekja athygli hv. deildar á því, að brtt. sú, er hjer liggur fyrir, er að eins formlegs efnis, og vænti þess, að enginn hafi neitt við hana að athuga.

Jeg vil jafnframt þakka hæstv. ráðherra (S. J.) fyrir ummæli hans um málið við 2. umr. þess, og treysti því, að í þeim felist trygging fyrir því, að málið eigi í vændum góðan framgang í hv. Nd.