08.01.1917
Efri deild: 14. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 65 í B-deild Alþingistíðinda. (793)

10. mál, skipaveðlán h.f. Eimskipafélags Íslands

Forseti:

Eg er fyllilega sammála hæstv. 1. landsk. þm. (H. H.) um þetta atriði og vil leyfa mjer að vekja athygli hæstv. Ed. á því, hve áríðandi og nauðsynlegt er að hafa jafnan eitt og sama orðalag á því, sem hjer um ræðir.