12.01.1917
Efri deild: 21. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 126 í B-deild Alþingistíðinda. (892)
44. mál, útflutningsgjald af síld
Halldór Steinsson:
Jeg get ekki sjeð, að sóma Ed. sje borgið fyrir það, þó að við fellum þetta frv., eins og hv. þm. Ak. (M. K.) tók fram. Það lítur helst út fyrir, að Nd. hafi haft þetta mál að leiksoppi. Hún mátti vita, að frv. stóðu í svo nánu sambandi hvort við annað, að það var hreint og beint banatilræði við þetta frv., að vísa hinu frá. En þó að þessi rökstudda dagskrá sje komin á laggirnar í Nd., þá á það ekki að verða þessu frv. til fyrirstöðu. Það er stutt til næsta þings, og þá væri auðvelt að bæta íslenskum síldveiðamönnum upp þann halla, er þeir biðu af tollhækkuninni.