20.12.1916
Efri deild: 3. fundur, 27. löggjafarþing.
Sjá dálk 183 í B-deild Alþingistíðinda. (979)
Minning Þórhalls biskups
Forseti:
Háttvirtir þingbræður!
Áður en jeg slít þessum fundi vildi jeg vekja athygli yðar á því, að á morgun fer fram jarðarför herra biskups Þórhalls Bjarnarsonar, og hefst með húskveðju í Laufási kl. 11½. Jeg vænti þess, að þjer allir, háttv. þingmenn, sýnið þessum látna merkismanni þann sóma, að fylgja honum til grafar.