01.08.1917
Neðri deild: 22. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1273 í B-deild Alþingistíðinda. (1010)

64. mál, tollalög

Frsm. (Þórarinn Jónsson):

Jeg ætla ekki að svara ræðu háttv. þm. Barð. (H. K.), álít þess enga þörf, en vil að eins benda honum á, að ef hann vill útvega sjer sýru, ætti hann að leita til háttv. þm. Árn., því að í þeirra kjördæmi eru þó nógu mörg rjómabú til að svala þorsta þeirra, sem ekki geta án öls verið.