15.09.1917
Efri deild: 59. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1330 í B-deild Alþingistíðinda. (1109)

72. mál, hagnýt sálarfræði

Kristinn Daníelsson:

Jeg greiddi atkv. með frv. þessu í dag, og býst við að gera það aftur nú, en jeg vildi láta þess getið um leið, að þessu atkv. mínu fylgir það skilyrði, að fjárveitingin, sem tekin er upp í fjárlögin, falli niður.

Og jeg lít svo á, að allir aðrir, sem atkv. greiða með frv., geri það með það sama fyrir augum, ef þeir lýsa ekki yfir hinu gagnstæða.