17.08.1917
Efri deild: 33. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1354 í B-deild Alþingistíðinda. (1160)
76. mál, mjólkursala í Reykjavík
Frsm. (Kristinn Daníelsson):
Jeg hefi engu við að bæta það, sem segir í áliti nefndarinnar og prentað er á þgskj. 460, enda vænti jeg, að háttv. þingdeildarmenn hafi kynt sjer það.
Nefndin er samdóma um það, að nauðsyn sje á því, að bæjarstjórn Reykjavíkur sje gefin heimild til þess að hafa eftirlit með gæðum mjólkur og rjóma, sem selt er hjer, og mælir nefndin því með, að frv. verði samþ.
Nefndin ber fram nokkrar breytingar á frv., en þær geta ekki talist efnisbreytingar.
Eins og sjest af 1. málsgr. 1. gr. er hjer að ræða um heimildarlög til handa bæjarstjórn Reykjavíkur, en 2. málsgr. 1. greinar segir afdráttarlaust: »Enginn má« standa fyrir sölu. Hjer er lagt lagabann fyrir því, að aðrir megi mjólk selja en þeir, sem hafa leyfi heilbrigðisnefndar. Þetta vill nefndin laga og setja í samræmi við lögin, sem heimila að eins bæjarstjórninni að banna það. Um þetta er fyrsta brtt. nefndarinnar.
Í öðru lagi leggjum við til, að 3. og 4. grein verði færðar saman í eina grein. Þær eru báðar um sama efni. Nefndinni þótti það oflangt gengið að banna neyslu mjólkur á veitingastöðum, og hefir því felt það niður. Eftir orðalagi greinarinnar mætti líta svo á, sem þeim, er mat kaupa á veitingastöðum, væri óheimilt að drekka mjólk með matnum. Í 4. gr. frv. er heimilað að banna að nota mjólk eða rjóma í kökur eða til sælgætis. Nefndinni þótti hjer fulllangt farið, og vill láta sjer nægja að heimila að banna að nota mjólk eða rjóma til sælgætis.
Jeg vænti þess, að háttv. deild samþ. frv. þetta.