30.07.1917
Neðri deild: 20. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1391 í B-deild Alþingistíðinda. (1226)

93. mál, eignarnám eða leiga á brauðgerðarhús o.fl.

Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):

Jeg sje ekki ástæðu til að fara mörgum orðum um frumvarpið. Jeg vona, að deildin leyfi því að ganga til 3. umr. Viðvíkjandi breytingartillögu, sem fram hefir komið, skal þess getið, að öll nefndin, að undanteknum háttv. þm. Dala. (B. J.), æskir þess, að frv. verði samþ. óbreytt.