13.08.1917
Neðri deild: 32. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1404 í B-deild Alþingistíðinda. (1251)

93. mál, eignarnám eða leiga á brauðgerðarhús o.fl.

Frsm. (Jörundur Brynjólfsson):

Jeg sje enga ástæðu til að fjölyrða um þetta mál, en læt mjer nægja að vísa til framhaldsnefndarálitsins; þar er gerð grein fyrir því hvernig nefndin lítur á breytingar þær, sem háttv. Ed. hefir gert á frv.; eru það mestmegnis orðabreytingar, og ekki nema tvær efnisbreytingar, hvorug þó stórvægileg. Vænti jeg þess að háttv. deild muni samþykkja frv. óbreytt, eins og nefndin leggur til.