13.08.1917
Efri deild: 29. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1428 í B-deild Alþingistíðinda. (1286)

111. mál, friðunartími hreindýra

Jóhannes Jóhannesson:

Jeg hefi heyrt kunnuga menn eystra bera brigður á, að nauðsynlegt sje að friða hreindýr alt árið. Það muni nægja að friða þau 11 mánuði; en óþarft sje að friða í ágústmánuði.

Málið hefir gengið nefndarlaust gegnum Nd., og vildi jeg leyfa mjer að stinga upp á, að þessi háttv. deild vísaði því til landbúnaðarnefndar, til þess að hún geti athugað þetta.