02.08.1917
Neðri deild: 23. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1430 í B-deild Alþingistíðinda. (1293)

112. mál, herpinótaveiði á fjörum inn úr Húnaflóa

Flm. (Magnús Pjetursson):

Þótt greinargerðin fyrir þessu frv. sje stutt, vona jeg, að hún sje nægileg, og skal jeg því ekki segja neitt frekar um málið að þessu sinni. Jeg legg til, að málinu verði vísað til sjávarútvegsnefndarinnar, og vil skjóta því til hennar að athuga vel línurnar, sem frv. getur um. Jeg skal lána nefndinni sjókort yfir Húnaflóa, ef hún æskir þess.