08.09.1917
Neðri deild: 55. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1444 í B-deild Alþingistíðinda. (1337)
127. mál, lokunartími sölubúða í kaupstöðum
Matthías Ólafsson:
Það mun naumast vera hægt að bregða háttv. allsherjarnefnd um fljótfærni. Hún hefir nú þurft 5 vikur til að athuga frv., sem enginn hefir fundið neitt við að athuga. Og nú hefir hún ekki einu sinni skilað skurninu. Hún fer að eins og hæna, sem fargar eggi sínu. En þegar nú nefndin leggur til, að frv. kæmi ekki til athugunar, þá hefði verið eðlilegast, að hún hefði fundið því eitthvað til foráttu um leið. En það er ekki einu sinni því að fagna. Þó hefir nefndin verið mun lengri tíma að ráða fram úr þessu máli en Molbúarnir fram úr vandræðunum með úrið. Þeir þurftu ekki nema örstutta stund, en nú hefir nefndin tekið það ráð að leggja kollhúfurnar yfir frv. í 5 vikur. Þetta virðist þó vera nokkuð einsætt mál. Til sanninda get jeg nefnt það, að allan þennan tíma hefir enginn komið til mín, til að kvarta yfir frv., af öllum kaupmönnum og verslunarþjónum bæjarins, nema einn tóbakssali. Hann vildi fá undanþágu fyrir tóbakssala. Það sje þó fjarri mjer að vilja undantaka tóbaks- eða sælgætissala. Þeir selja reyndar mest að kvöldi til, en jeg held, að það ríði ekki á miklu fyrir almenning, þótt þeir væru skyldaðir til að loka búðum sínum á sama tíma og aðrir.
Annars skal jeg nú reyna að gera mig ánægðan með það horf, sem málið er komið í. Annað frumvarpið verður þó samþykt, ef háttv. deild metur að nokkru hina nákvæmu yfirvegun nefndarinnar. Ef kaupmannastjettinni hjer í Reykjavík hefir verið hitt frv. áhugamál, þá ætti það að vera vinnandi vegur fyrir hana að fá bæjarstjórnina á sitt mál. Þannig gæti alt komið í sama stað niður. Samþyktirnar verða eins bindandi og lög. Auðvitað mega þær ekki vera eins alstaðar. Það hagar ekki eins til alstaðar á landi hjer. Meðal annars er skammdegið lengra norðanlands en hjer sunnanlands. Sumstaðar þarf líka að halda búðum lengi opnum um lestirnar. Þess vegna er hentugast, að hvert sýslu- eða bæjarfjelag geri samþykt út af fyrir sig, miðaða við staðhætti. Jeg vona því, að þetta frv. nái fram að ganga, og er betri hálfur skaði en allur.