12.09.1917
Efri deild: 55. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1526 í B-deild Alþingistíðinda. (1441)

146. mál, almenn hjálp

Halldór Steinsson:

Jeg vil leyfa mjer að benda hæstv. atvinnumálaráðherra á það, að skýrslan aftan við nefndarálitið er villandi. Sjerstaklega er mjer þetta kunnugt að því er mitt kjördæmi snertir. Í skýrslunni eru því ætlaðar 50 smálestir yfir veturinn. En jeg er sannfærður um, að því mun ekki veita af 150 smálestum. Ef þessi tala er gefin af sýslumanninum, þá hlýtur það að stafa af ókunnugleika.