05.09.1917
Neðri deild: 52. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1727 í B-deild Alþingistíðinda. (1619)

169. mál, aðflutningsbann á áfengi

Pjetur Ottesen:

Þar sem ýmislegt virðist benda til þess, að aðstaðan til brtt. minnar, sem samþykt var hjer í deildinni við 2, umr. málsins, sje sú, að sú breyting geti, ef til vill, staðið fyrir framgangi annara breytinga á þessum lögum, þá mun jeg ekki að þessu sinni halda henni til streitu með atkv. mínu. Þetta er þó ekki af því, að jeg sje ekki nú sem fyr sannfærður um það, að þetta sje nauðsynlegt og sjálfsagt ákvæði í bannlögunum, heldur af þeim ástæðum, er jeg nefndi.