06.07.1917
Efri deild: 4. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1748 í B-deild Alþingistíðinda. (1677)
26. mál, stækkun verslunarlóðar Ísafjarðar
Flm. (Magnús Torfason):
Eins og tekið er fram í greinargerð þeirri, er fylgir frv., er hjer að ræða um hluta úr jörðinni Seljalandi, er liggur innan Eyrarhrepps. Jörð þessi var keypt handa Ísafirði fyrir fullum 20 árum; þáverandi bæjarfógeti á Ísafirði, háttv. 1. landsk. þm. (H. H.), var svo framsýnn að kaupa hana handa bænum, þótt dýr þætti þá. Nú er svo komið, að hún hefir verið tekin til atvinnurekstrar, og er bænum ómissandi, að hún verði löggilt sem verslunarlóð.
Að öðru leyti vísa jeg til greinargerðar þeirrar, er fylgir frv., en vænti þess, að málinu verði vísað til 2. umr. og síðan til allsherjarnefndar.