07.07.1917
Efri deild: 5. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1751 í B-deild Alþingistíðinda. (1691)

27. mál, bæjarstjórn Ísafjarðar

Flm. (Magnús Torfason); Þetta frv. er hingað komið samkvæmt tillögu bæjarstjórnar Ísafjarðarkaupstaðar og stendur í sambandi við annað mál, er tekið var til umræðu hjer í gær, og var því vísað til allsherjarnefndar.

Jeg sje ekki ástæðu til að fara fleirum orðum um málið að sinni, en legg til, að því verði vísað til 2. umr. og síðan til allsherjarnefndar.