21.08.1917
Neðri deild: 39. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í B-deild Alþingistíðinda. (17)

1. mál, fjárlög 1918 og 1919

Atvinnumálaráðherra (S. J.):

Það var að eins örstutt svar út af fyrirspurn háttv. 2. þm. Rang. (E. J.) Hann var að spyrja um það, hvort »Landið« og »Tíminn« kæmi hæstv. fjármálaráðherra og mjer ekki við. Jeg get ekki annað en svarað þessu játandi. Auðvitað kemur Ísland okkur mikið við, ekki síst á þessum erfiðu tímum, sem nú ríða yfir. Og þessir tímar, sem eru nú að líða, snerta okkur líka mikið. Jeg veit ekki annað en að hv. þm. Rang. (E. J.) hafi átt við þetta, og vil mega skilja spurninguna á þann veg, og eins og mjer finst þessi sjerstaka útgáfa af hans tíða, gamansama orðaleik gefa tilefni til.