12.09.1917
Neðri deild: 58. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1759 í B-deild Alþingistíðinda. (1713)

27. mál, bæjarstjórn Ísafjarðar

Frsm. (Einar Arnórsson):

Frv. þetta hefir við eina umr. í Ed. tekið einni breytingu, sem stafar af því, að felt var hjer í deildinni um daginn frv. til hafnarlaga fyrir Ísafjörð; ein grein þessa frv., sem nú liggur hjer fyrir, var bygð á tilveru hafnarlagafrv. Þessi breyting er því sjálfsögð og væntanlega enginn á móti henni. Legg jeg því til, frv. verði samþ. óbreytt.