13.07.1917
Efri deild: 8. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1780 í B-deild Alþingistíðinda. (1724)
39. mál, fasteignamat
Magnús Torfason:
Að eins fáein orð, út af því, sem háttv. 4. landsk. þm. (G. G.) sagði.
Við sjáum, að hann er og hefir verið hræddur við landbúnaðarnefndina, því að annars myndi hann hafa látið þá nefnd, sem hann situr í, bera fram málið.
Háttv. flm. (G. G) sagði, að 2. gr. væri aðalefni frv., ákvæðið um þóknunina, og er hinu þá að eins prjónað framan við. Hefir líklega ekki þótt sæma að koma með frv. að eins um það.
(G. G.: Ágætt fyrir háttv. þm. Þetta var mismæli). Jeg hafði reynt að leiðrjetta háttv. þm.
(G. G.), en þá hnykti hann á þessu, en úr því að hann tekur það nú aftur, er óþarfi að eyða um það frekari orðum.
Hátt. þm. (G. G.) sagði, að húsaskattur myndi hamla mönnum frá að gera húsabætur. Þetta eru ekki sæmilegar getsakir í garð bænda; svo sinkir held jeg að bændur sjeu ekki, þó að þeir kunni vel að meta peninga. En það, sem jeg legg áherslu á, er það, að við bíðum betri upplýsinga, áður en við ákveðum, hvaða skattar verði lagðir á eftir fasteignamati. Jeg hefi yfirfarið mat úr 2 sýslum, og er jeg sannfærður um, að það verður aldrei lagður skattur á eftir þessu mati, enda er það líka víst, að á þessu fasteignamati hefir verið mikil fljótaskrift, og matið þarf gagngerðra endurbóta við.