06.09.1917
Efri deild: 49. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1861 í B-deild Alþingistíðinda. (1818)

63. mál, bæjarstjórn á Akureyri

Framsm. (Magnús Torfason):

Háttv. Nd. hefir að eins gert eina efnisbreytingu á frv. frá því, er það fór hjeðan. Bæjarfulltrúunum hefir sem sje verið fjölgað úr 9 í 11, samkvæmt beiðni í erindi nokkurra bæjarbúa á Akureyri, er höfðu sent til þingsins brtt. við frv., eins og það kom frá bæjarstjórn Akureyrar. Nefndin hefir ekkert við breytingu þessa að athuga, og telur hún víst, að háttv. deild samþykki frv. óbreytt, eins og það nú liggur fyrir.

Aðrar breytingar eru smávægilegar orðabreytingar, sem heldur virðast til bóta.