04.07.1917
Neðri deild: 2. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 599 í B-deild Alþingistíðinda. (182)

2. mál, fjáraukalög 1914 og 1915

Pjetur Jónsson:

Jeg ætlaði að stinga upp á því, að þessu frv. til fjáraukalaga fyrir árin 1914 og 1915 verði vísað til fjárhagsnefndar. Jeg geri ráð fyrir, að þingsköpin ætlist svo til, að hún taki að sjer störf reikningslaganefndarinnar, sem áður hefir verið kosin.