25.07.1917
Efri deild: 14. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1868 í B-deild Alþingistíðinda. (1841)

66. mál, gjöld til holræsa og gangstétta á Akureyri

Flm. (Halldór Steinsson):

Þetta mál fekk svo góðar undirtektir við 1. umr., að jeg hefi fylstu ástæðu til að ætla, að það hafi gott gengi áfram.

Það þótti ekki ástæða til við 1. umr. að vísa málinu til neinnar fastanefndar, og ef háttv. deild sjer ekki ástæðu til þess nú, þá vil jeg að eins mælast til þess, að það fái að ganga fram til 3. umr.