10.08.1917
Neðri deild: 30. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1870 í B-deild Alþingistíðinda. (1849)

66. mál, gjöld til holræsa og gangstétta á Akureyri

Pjetur Jónsson:

Jeg vil leggja það til, að frv. verði vísað til landbúnaðarnefndar. Jeg segi ekki þar með, að frv. þetta sje neitt sjerlega athugavert. En jeg býst við, að öðrum hafi farið líkt og mjer, að hafa engan tíma haft til að athuga það, fremur en svo mörg önnur smærri mál. Jeg lít þess vegna svo á, að það sje ekki heppilegt, að deildin láti mál ganga fram hjá sjer, án þess að þau sjeu athuguð af einhverri nefnd.