30.08.1917
Efri deild: 43. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1896 í B-deild Alþingistíðinda. (1907)

91. mál, manntal í Reykjavík

Kristinn Daníelsson:

Þetta mál er komið aftur frá háttv. Nd. Það var upphaflega flutt af mjer og gekk í gegnum þessa háttv. deild nefndarlaust. Engar efnisbreytingar hafa verið gerðar á frv., en að eins kveðið skýrara á um eitt ákvæði, sem í raun og veru fáist í frv. áður. Það hefir verið bætt inn í það orðunum »á kostnað bæjarsjóðs«. Jeg vona því, að háttv. deild samþykki frv., eins og hún hefir áður gert.