09.08.1917
Efri deild: 26. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1907 í B-deild Alþingistíðinda. (1931)
106. mál, breyting á tilskipun og fátækralögum
Frsm. (Guðmundur Ólafsson):
Þetta frv. fer fram á breyting á tilskipun frá 30. apríl 1824, 3. gr. 10. Í þessari grein tilskipunarinnar er ákvæði um það, að ekki sje leyfilegt að gefa saman hjón, sem standa í skuld fyrir þeginn sveitarstyrk, nema sveitarstjórnin, þar sem maðurinn er sveitlægur, lýsi yfir því, að hún hafi ekkert við hjónabandið að athuga. Samskonar ákvæði eru í fátækralögum frá 10. nóv. 1905. Þessi bannlög hafa þráfaldlega verið brotin, eins og önnur bannlög, og prestar hafa gefið saman hjón þar sem þetta skilyrði var fyrir hendi. En það eru engin ákvæði til um sektir fyrir brot á þessu, og hafa úrslitin því orðið mjög misjöfn, þegar málið hefir komið til úrslita dómstólanna, eftir því hvað viðkomandi hjón hafa orðið sveit sinni mikið eða lítið til byrðar. Prestar, sem hafa gert sig seka í þessari yfirsjón, hafa því orðið mjög misjafnlega hart úti. Sumir hafa orðið að greiða mikið fje og sjá um framfærslu fjölda barna, en aðrir hafa alveg sloppið við útgjöld og vitalaust. En sama brotið hefir þó verið í báðum tilfellunum. Ef þetta frv. nær fram að ganga, er ráðin bót á þessum misfellum á mjög sanngjarnan hátt. Jeg vil því mælast til þess, fyrir hönd nefndarinnar, að háttv. deild taki frv. vel og samþykki það.
Jeg vil að lokum geta þess, að í ástæðunum fyrir frv. er rangt ártal, 1884, í stað 1904.