13.08.1917
Neðri deild: 32. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2018 í B-deild Alþingistíðinda. (2034)

139. mál, útmælingar lóða

Forsætisráðherra (J. M.):

Því hefir verið hreyft, að frv. þetta gengi um ofnærri eignarrjetti manna og ríði með því í bága við stjórnarskrána.

Það er víst um það, að frv. er varhugavert og að þetta hefir við mikið að styðjast. Vil jeg því mæla með, að frv. verði vísað til allsherjarnefndar, svo að hún geti athugað það, og þá ekki síst þetta atriði.