04.09.1917
Efri deild: 47. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2046 í B-deild Alþingistíðinda. (2057)

174. mál, rekstur loftskeytastöðva á Íslandi

Framsm. (Jóhannes Jóhannesson):

Eins og greinargerðin ber með sjer er frv. þetta samið af landssímastjóranum og er viðauki við ritsímalögin frá 20. okt. 1905. Hann afhenti það landsstjórninni og hún aftur samvinnunefnd samgöngumála, er hefir athugað frv. og lagað orðfæri þess á ýmsum stöðum, og leggur það nú fyrir háttv. deild. Leyfi jeg mjer, fyrir nefndarinnar hönd, að leggja til, að það fái greiðan gang gegnum háttv. deild.