19.07.1917
Neðri deild: 14. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2056 í B-deild Alþingistíðinda. (2082)

77. mál, kolanám

Frsm. (Bjarni Jónsson):

Í ræðu minni er ekkert mishermi. Það er helber misskilningur hjá háttv. 1. þm. Reykv. (J. B.), eins og það er líka misskilningur hjá honum, að hann sje hjer nokkur fulltrúi fyrir bæjarstjórn Reykjavíkur. Jeg er ekki heldur að dæma bæjarstjórnina; verk hennar dæma hana.