20.07.1917
Neðri deild: 15. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2057 í B-deild Alþingistíðinda. (2087)

77. mál, kolanám

Frsm. (Bjarni Jónsson):

Þar sem till. þessari var svo vel tekið við 1. umr., sje jeg ekki ástæðu til að lengja umræðurnar. Jeg held, að háttv. þm. sjeu allir svo einhuga um þetta mál, og það standi svo ljóst fyrir þeim, að frekari skýringar sjeu óþarfar. Jeg leyfi mjer því að óska þess, að till. verði samþykt.