07.09.1917
Efri deild: 50. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2145 í B-deild Alþingistíðinda. (2228)

157. mál, landsreikningarnir 1914 og 1915

Fjármálaráðherra (S. E.):

Vegna þess, að jeg er ókunnugur atriði því, er háttv. þm. Ísaf. (M. T.) var að tala um, þá get jeg ekki svarað ræðu hans nú, en mun gera grein fyrir því jafnskjótt og auðið er, og við síðari umr. þessa máls, ef hægt verður og jeg hefi þá fengið málið upplýst. Jeg mun annars gera mjer alt far um, að afstaða landsverslunarinnar til landssjóðs verði sem skýrust.