27.08.1917
Neðri deild: 44. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2179 í B-deild Alþingistíðinda. (2264)
171. mál, verð á landssjóðsvöru
Forsætisráðherra (J. M.):
Mjer skilst, að það sje mjög heppilegt, að bjargráðanefnd athugi þetta mál, en skal annars ekki bæta öðru við það, sem atvinnumálaráðherrann sagði, en því, að þar sem háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) talaði um, að steinolíufjelagið hefði altaf selt vöru sína sama verði alstaðar á landinu, þá er því til að svara, að það hefir áður sjeð sjer það fært, en nú ekki, því að nú er ákveðið verðið á olíunni hjer í Reykjavík og síðan lagður við það flutningskostnaður út um land, og borga þá sumir meira fyrir flutninginn en aðrir. T. d. verður Austurland og að nokkru leyti Norðurland að borga meira en Suðurland fyrir olíu fjelagsins, í stað þess að landsstjórnin hefir selt sína steinolíu með sama verði um land alt. Sama hygg jeg vera með sykur, og þannig má taka einstaka vörutegund, sem skiftist nokkurn veginn jafnt á milli landsmanna, en miklu erfiðara er það aftur með þá vöru, sem er ekki hægt að vita hve mikið þarf af, af því að fleiri flytja hana. Þetta mál er þess vert, að það sje athugað í nefnd.