14.09.1917
Efri deild: 57. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2222 í B-deild Alþingistíðinda. (2293)

171. mál, verð á landssjóðsvöru

Jóhannes Jóhannesson:

Jeg vil leyfa mjer að beina þeirri fyrirspurn til hæstv. forseta, hvort leyfilegt muni að bera upp brtt., verði aðaltill. feld. Jeg hygg, að málið myndi þá úr sögunni, og ekki sje leyfilegt að bera undir atkvæði brtt. við felda tillögu.