15.09.1917
Sameinað þing: 7. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2225 í B-deild Alþingistíðinda. (2300)

171. mál, verð á landssjóðsvöru

Einar Arnórsson:

Jeg hefi ekki fengið tækifæri til þess að bera till. þessa undir bjargráðanefnd Nd., eins og hún er nú, en jeg get sagt fyrir mitt leyti, og jeg hygg, að meiri hluti nefndarinnar muni líta svo á, að þessi till. hafi flesta þá ágalla, sem honum virtist hin till. hafa. En jeg skal ekki fara út í það mál að svo komnu. Landsstjórnin lýsti yfir því, þegar málið var til umr. í Nd., að hún teldi till. þar óframkvæmanlega, en nú hefir hún ekki lýst yfir neinu um þessa till., og ef stjórnin hefir ekki á móti henni og telur hana framkvæmanlega, þá læt jeg hana, fyrir mitt leyti, afskiftalausa.