08.09.1917
Neðri deild: 55. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2242 í B-deild Alþingistíðinda. (2323)

184. mál, vegamál

Frsm. (Þorleifur Jónsson):

Jeg hefi engu við að bæta það, sem jeg tók fram við fyrri umræðuna. En jeg læt þess getið, að meiri hluti samgöngumálanefndar finnur ekki ástæðu til að setja sig á móti brtt. á þgskj. 824, og hún álítur ekkert á móti því, að stjórnin taki mál það til athugunar, er þm Árnesinga og Rangvellinga bera þar fram.