13.09.1917
Efri deild: 56. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2243 í B-deild Alþingistíðinda. (2328)

184. mál, vegamál

Jóhannes Jóhannesson:

Tillaga þessi er flutt af samvinnunefnd samgöngumála og var fyrst borin upp í háttv. Nd. á þgskj. 809. Fylgir henni þar greinargerð nokkur, er jeg skal láta mjer nægja að vísa til.

Í Nd. var 4. liðnum bætt við, eftir till. háttv. þm. Árn. (S. S. og E. A.). Finst mjer ekki nema rjett, að atriði það, er þar ræðir um, sje athugað, og leyfi mjer því að leggja það til, að þingsályktunartillagan verði samþykt eins og hún liggur fyrir.