05.09.1917
Neðri deild: 52. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 683 í B-deild Alþingistíðinda. (261)

3. mál, fjáraukalög 1916 og 1917

Frsm. (Bjarni Jónsson):

Eins og nál. á þgskj. 783 ber með sjer hefir nefndin sætt sig við þær breytingar, sem háttv. Ed. hefir gert á frv. Jeg sje ekki ástæðu til þess að orðlengja þetta á neinn hátt, og leyfi mjer því að óska þess, að framvarpið verði samþykt óbreytt.