25.07.1917
Neðri deild: 17. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 380 í C-deild Alþingistíðinda. (2695)
52. mál, skipun læknishéraða o. fl. (Bakkahérað)
Magnús Pjetursson:
Jeg ætla ekki að gera neina aths. við niðurstöðu nefndarinnar, en að eins benda hv. frsm. (E. Árna.) á, að það er misskilningur hjá honum, að hætta sje á því, þótt nýtt hjerað verði myndað, að það verði þá ver statt en áður, vegna þess, að enginn læknir sje þá skyldur að gegna, ef kallað er. Nýju hjeruðin myndast ekki fyr en nýr læknir sækir um þau, og þangað til hefir sá læknir, sem áður hefir haft það til yfirsóknar, jafnar skyldur og áður, og þótt svo væri, að læknir hefði fengist þangað og svo yrði aftur læknislaust, þá er altaf næsti læknir settur til að þjóna þeim, með sömu skyldum.