25.07.1917
Neðri deild: 17. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 382 í C-deild Alþingistíðinda. (2698)

52. mál, skipun læknishéraða o. fl. (Bakkahérað)

Einar Arnórsson:

Jeg vildi einungis geta þess, út af sneiðinni, sem hv. 1. þm. N.-M. (J. J.) var að stinga að mjer, að sumir teldu sama að vísa máli til stjórnarinnar sem að jarðsetja það, þá er vitanlega ekki sama, hvert málið er. Sum mál eru svo algerlega umboðslegs eðlis, að sjálfsagt er að stjórnin fjalli um þau, og svo er um þetta; það er því sjálfsagt að vísa því til stjórnarinnar.