02.08.1917
Neðri deild: 23. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 454 í C-deild Alþingistíðinda. (2772)
107. mál, merkjalög
Pjetur Jónsson:
Jeg býst við, að hv. flutnm. (Þór. J.) hafi skýrt þetta frv. í framsöguræðu sinni. En bæði jeg og fleiri vorum ekki við, er hann hjelt framsöguræðu sína, og höfum ekki haft tíma til að lesa þetta frv. saman við merkjalögin, sem nú gilda, og svo er um mörg fleiri frv., sem nú liggja fyrir þinginu. Jeg skal því ekki gera frv. sjálft að umtalsefni, heldur greinargerðina, sem því fylgir. Það er svo um flest málin, sem koma til þingsins, að þeim fylgir sama sem engin greinargerð. Flestir skírskota til framsöguræðunnar, en það er nú svo, að oft er búið, áður en hún er haldin, að þreyta mann með löngum ræðum, enda oft svo mikill ys í deildinni, að ógerningur er að taka eftir því, sem fram fer.
Það virðist því eiga að vera á þeim vegi, að gera að engu það ákvæði þingskapanna, að greinargerð fylgi hverju frv., til þess að ljetta þingmönnum fyrir að skilja málið. Það er beint ofþjökun á kröftum okkar þingmanna, með öllum þessum málafjölda, að taka á móti málunum svona undirbúnum. Vil jeg skjóta því til hæstv. forseta að bæta úr þessu, þótt það þá kostaði frávísun á málum, sem sama sem engin greinargerð fylgir.
Jeg vona, að háttv. flm. þessa frv. (Þór. J.) misvirði það ekki við mig, að jeg kem fram með þetta nú. Jeg stíla ekki ræðu mína neitt sjerstaklega til hans, heldur alment, þótt að vísu sjeu heiðarlegar undantekningar.