14.08.1917
Neðri deild: 33. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 541 í C-deild Alþingistíðinda. (2853)
136. mál, aðflutningsbann á áfengi
Bjarni Jónsson:
Jeg vil leyfa mjer að lýsa yfir því, að eftir minni skoðun er úrskurður hæstv. forseta hárrjettur, því að í 42. gr. þingskapanna stendur: „Meðan á umræðum stendur, má gera tillögu, er bygð sje á ástæðum, um að taka skuli fyrir næsta mál á dagskránni, og skal þá afhenda forseta tillöguna um það skrifaðau. Þessi rökstudda dagskrá er afhent á undan; ástæðurnar eru í henni, og er því skylt að bera hana fyr upp, þótt engin ræða fylgi.