27.07.1917
Efri deild: 16. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 672 í C-deild Alþingistíðinda. (2957)

86. mál, innheimta og meðferð á kirknafé

Forseti:

Jeg vil vekja athygli háttv. deildar á, að í síðustu málsgr. 16. gr. þingskapanna er skýrt tekið fram, að fjárhagsmál geti vel verið í öðrum nefndum en fjárveitinganefnd, en ef um útgjöld er að ræða, ber nefnd þeirri, sem málið hefir til meðferðar, að leita álits fjárveitinganefndar.