27.07.1917
Efri deild: 16. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 672 í C-deild Alþingistíðinda. (2959)

86. mál, innheimta og meðferð á kirknafé

Hannes Hafstein:

Jeg vil mæla með því, að frumvarpinu verði vísað til mentamálanefndar. Jeg felli mig vel við þá uppástungu hæstv. forseta, að þangað sje vísað heilbrigðismálum og kirkjumálum. Ef sú regla væri upp tekin, hefði þessi nefnd eitthvað að gera.