01.09.1917
Neðri deild: 49. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 680 í C-deild Alþingistíðinda. (2975)

86. mál, innheimta og meðferð á kirknafé

Gísli Sveinsson:

Að eins örfá orð. Jeg skrifaði það orðrjett upp úr ræðu hv. frsm. (Sv. Ó.), sem líka er í samræmi við nefndarálitið, að hann sagði, að samkvæmt lögunum frá 22. maí 1890, sem nú gilda, bæri landssjóður ábyrgð á fje kirkjusjóðsins. Þetta eru hans óbrjáluð orð. En þessi staðhæfing hans er algerlega röng.