04.09.1917
Neðri deild: 51. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 711 í C-deild Alþingistíðinda. (3009)
124. mál, löggæsla
Frsm. (Magnús Guðmundsson):
Jeg held því fast fram, að löggæsla sje miklu erfiðari t. d. í Suður-Múlasýslu en Vestmannaeyjum, og jeg fæ ekki betur sjeð en að þessum löggæslumönnum sje ætlað að ferðast, því að þeim er ætlaður ferðakostnaður og dagpeningar. Nú vildi jeg spyrja, hvort þeir eigi þá að fá ferðakostnað og dagpeninga auk launa fyrir að rjátla um í kaupstöðunum og í Vestmannaeyjum? Þetta stendur í frv. En annars er óþarfi að ræða meira um frv.; það er óhæft, eins og nú stendur, og nauðsynlegt að sálga því nú þegar.