30.08.1917
Neðri deild: 47. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 725 í C-deild Alþingistíðinda. (3028)

119. mál, hafnarlög fyrir Ísafjörð

Bjarni Jónsson:

Með því að mjer, og sjálfsagt mörgum öðrum háttv. þingdm., hefir ekki unnist tími sökum annara anna að athuga frv. þetta, vildi jeg óska, að það væri tekið út af dagskrá og umræðu frestað.