06.09.1917
Neðri deild: 53. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 729 í C-deild Alþingistíðinda. (3043)

178. mál, laun íslenskra embættismanna

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg get ekki svarað þessari fyrirspurn fyrir hönd ráðuneytisins; það hefir ekkert rætt saman um þetta mál. Að öðru leyti sje jeg ekki ástæðu til að setja málaleitun háskólakennaranna í samband við frv. þetta. Það er ekki komið frá stjórninni, heldur frá nefnd í Ed. En þótt eigi sje ástæða til að blanda þessum tveim málum saman, þá má þó vel vera, að nefnd sú, sem jeg geri ráð fyrir að fái frv. þetta til meðferðar, taki og hitt málið eitthvað til athugunar.