21.07.1917
Neðri deild: 16. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 879 í C-deild Alþingistíðinda. (3201)

78. mál, útibú frá Landsbanka Íslands í Árnessýslu

Flm. (Einar Arnórsson):

Jeg hefi alls ekki sett þetta frv. í samband við stofnun útibús á Austfjörðum. Það er alls ekki tilgangurinn að setja með þessu frv. neinar hömlur fyrir, að það verði stofnað svo fljótt, sem bankastjórn og landsstjórn sjá sjer fært.