31.07.1917
Neðri deild: 21. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 880 í C-deild Alþingistíðinda. (3204)

78. mál, útibú frá Landsbanka Íslands í Árnessýslu

Frsm. (Einar Arnórsson):

Þess er að eins að geta, eins og nefndarálitið ber með sjer, að allsherjarnefnd hefir athugað frv. þetta og leggur til, að það verði samþykt óbreytt. Jeg hefi heldur engu að bæta við þær athugasemdir, sem frv. fylgdu, og þær skýringar, sem jeg gaf við 1. umr. þessa máls, og skal því ekki lengja umræðuna, nema tilefni gefist til.