13.09.1917
Efri deild: 56. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 901 í C-deild Alþingistíðinda. (3246)
140. mál, verðlag á vörum
Frsm. (Karl Einarsson):
Þetta frv. er samhljóða gildandi lögum um þetta efni. Einungis er bætt inn einni gr., um að landsstjórninni gefist heimild til þess að undanskilja vörur, sem útflutningsbann er á, að fengnum tillögum Búnaðarfjelags Íslands, ef um landbúnaðarafurðir er að ræða, og Fiskifjelags Íslands, ef um sjávarafurðir er að ræða. En svo hefir komið fram brtt. um, að stjórnin skuli auk þess leita álits verðlagsnefndar. Jeg hefi ekki getað borið mig saman við nefndina um þessa brtt., en sje ekki fyrir mitt leyti neitt því til fyrirstöðu, að hún verði samþykt.